Perlubrúðkaupsafmæli!

Nei, ekki mitt, enda ekki löglega gift ennþá... EN Mamma og Pabbi fagna þessum áfanga í dag!! Til hamingju með það ;) ...og fyrir ykkur sem vitið ekki, þá er berlubrúðkaupsafmæli semsagt 30 ára brúðkaupsafmæli!! Já, þau hafa verið gift jafnlengi og ég er gömul, svo það er auðvelt að muna þetta fyrir mig ;)

Talandi um brúðkaup... fór í eitt um daginn. Rosa flott og rosa gaman. Var haldið í sveitakirkju og veislan á heimili brúðhjónanna í sveitinni. (btw, rosa flott hús sem þau eiga!) Til hamingju með daginn Daði og Hulda, þið voruð ekkert smá flott!!

Og nýjustu fréttirnar... ÉG er að fara að flytja!!! Hlakka ekkert smá til. Engar fleiri tröppur eftir 14 daga... Get ekki beðið, enda strákarnir farnir að síga í og ekkert grín að labba upp 3 HÆÐIR með einn strák undir hvorri hendi!! ...verð nú að viðurkenna að ég hef ekki mikið þurft að bera þá upp alveg ein, en það kemur fyrir samt!!

Allavega... þið sem viljið nota tækifærið og heimsækja mig í síðasta sinn í Hraunbæinn... eins gott að drífa sig... og þið sem vitið um e-rn sem vantar litla íbúð í Hraunbænum... þá er mín til sölu!!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju með foreldrana og nýju íbúðina! Ég held ég segi pass þegar kemur að því að príla upp 3 hæðir, komin 6 daga framyfir... Kíki frekar í nýja húsið á jarðhæðinni ;)

Kveðja, Sonja og bumbukrílið

Sonja (IP-tala skráð) 1.7.2008 kl. 15:58

2 identicon

Hæ. Til hamingju með þetta :) Hvert flytjið þið? Hvað kostar svona íbúð eins og ykkar?

Ólöf Inger (IP-tala skráð) 8.7.2008 kl. 06:31

3 Smámynd: Tinna Rós Steinsdóttir

Hey...hefuru e-n tíman talið tröppurnar upp til þín! Mæli með því að þú gerir það svona áður en þú flytur! :)

Tinna Rós Steinsdóttir, 8.7.2008 kl. 10:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhanna Kristín Steinsdóttir
Jóhanna Kristín Steinsdóttir
Tveggja stráka og ólétta mamman sem býr rétt við Heimsenda... og hefur engan tíma til að blogga en langar samt að láta á það reyna!!

Nýjustu myndir

  • ...copy_513237

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband