Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008
29.5.2008 | 16:12
Hér hrundu möppur!!!
Mér brá ekkert smá... var í sakleysi mínu inní eldhúsi að taka til þegar allt fór að hristast. Fannar var í vagninum útá svölum og Arnar svaf í stofunni. Hljóp til og tók Arnar í burðarrúminu og stóð svo í svalahurðinni þangað til allt varð rólegt aftur. ...tja, nema litla hjartað mitt!!! Horfði líka á möppurnar ofaná skrifborðinu hrynja í gólfið og hugsaði bara með mér... hvað næst, eins gott að vera hvergi fyrir og hafa strákana safe!!! Þeir tala um að hlutir hafi hrunið úr hillum í Hveragerði og á Selfossi... En þeir gerðu það sko líka hér í Hraunbænum!!!
Afhverju þarf ég alltaf að vera "ein" þegar koma jarðskjálftar??? muniði eftir skjálftunum stóru þarna á 17 júní og aftur nokkrum dögum seinna??? Þá var ég líka ein í bæði skiptin!!! (þó ég sé með litlu prinsana, þá telst það eiginlega ekki með... eða hvað???)
Afar öflugur jarðskjálfti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.5.2008 | 09:29
Það tókst...
Jæja, þá bara vitum við það að þegar ég breyti myndinni, þá breytist hún allsstaðar ;) Jeii... Nú mega allir bjóða mér að vera bloggvinur... því ég kann ekki að bjóða ykkur... (humm, er að læra þetta allt ennþá!)
Meira seinna... kúkableyja á ferð og allt ilmar...!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.5.2008 | 09:08
prufa...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.5.2008 | 14:20
Hehe
Já, eins og ég sagði... ég ætla að reyna að blogga, en veit ekki alveg hvernig það á eftir að ganga. Mig langar... en þegar maður á tvo litla herramenn sem stjórna dagskipulaginu þá verður maður að vera sniðugur í samningaviðræðum!!
EN þið sem hafið boðið mér að vera bloggvinur og ég hef ekki bætt ykkur á listann... það er bara af því ég ætla að laga myndina fyrst af mér... ÉG hlýt að eiga betri mynd en þetta. Og þegar ég er búin að laga myndina, þá verður ykkur svarað. (svona svo ljóta myndin sem er núna festist ekki á síðunum ykkar við nafnið mitt!!!)
Var annars í sumarbústað í allan gær... afmæli í dag og Gullbrúðkaupsveislu alllan morgundaginn... Svosem gaman að hafa nóg að gera, en eins og oft áður, þá hrúgast alltaf allt á sömu dagana, ...kannist þið ekki við þetta???
bh , njj z dfr hhkk ...Kveðja, Fannar Smári!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Tenglar
Kútur og Snúður
- Strákarnir mínir Flottustu strákarnir mínir
Bloggarar
- Glimmergellan Dóra systir
- Ólöf Inger Íslensk í Danmörku!
- Sonja frænka Ein af stóru frænkunum mínum
Bloggvinir
Eldri færslur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar