5.10.2008 | 08:19
Gleymdi einu... og nýjar fréttir!
Úff.. ég skil ekkert í mér.. Var kannski svona rosalega hugmyndalaus um daginn en...
Fjórar hljómsveitir eða tónlistarmenn sem ég held uppá
- Neibb.... ekkert sérstakt þarna. sorrý....
- Neibb.... þetta á ekki að vera svona!!!!
Fjórar hljómsveitir eða tónlistarmenn sem ég held uppá
- Carola!!!
- Eyfi... hann er góður ;)
- Friðrik og Regína. Þau eru bara flott saman!
- Já... lítur betur út þó listinn sé ekki fullkomin!
Var annars uppá Barnaspítala í gær. Fannar Fékk hitakrampa og þurfti að fara og hitta lækni. Fengum sjúkrabíl heim en þeir bara skoðuðu hann aðeins og sögðu okkur svo að fara bara sjálf niðureftir, en þeir létu vita af okkur samt. Vorum niðurfrá í kannski 2 tíma og fórum svo heim aftur. Fannar hresstist með auknum verkjalyfjum en steinsofnaði svo í gærkvöldi og sefurennþá, sem er frekar ólíkt honum. Er alveg búin að tékka á honum nokkrum sinnum í nótt og morgun en hann er bara eftir sig eftir þetta alltsaman. Ætla að setja söguna betur inn á síðuna hjá strákunum!
Hvað er eiginlega málið með Facebook?? Var spurð um daginn afhverju ég bloggaði ennþá... afhverju ég væri ekki farin á facebook?? Málið er bara að ég kann ekkert á svoleiðis, veit ekkert um hvað það snýst og veit þess vegna greinilega ekkert hverju ég er að missa af... eða hvað???
Tenglar
Kútur og Snúður
- Strákarnir mínir Flottustu strákarnir mínir
Bloggarar
- Glimmergellan Dóra systir
- Ólöf Inger Íslensk í Danmörku!
- Sonja frænka Ein af stóru frænkunum mínum
Bloggvinir
Eldri færslur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er ekki hægt að blogga áFacebook!! Maður hættir ekki að blogga þótt maður sé með Facebook. Ég kann ekkert á þetta heldur en er þarna samt.
Þjóðarblómið, 5.10.2008 kl. 14:56
Hæ. Líst vel á og bíð spennt eftir meilinu þínu :) Þakka gott boð og þigg það örugglega þó ég verði ekki eins lengi á Íslandi og ég hefði vonast til.
Ólöf Inger (IP-tala skráð) 5.10.2008 kl. 15:19
Facebook er málið:-) Meira að segja tölvuklaufinn ég gat þetta, hehe! Og þá geta ALLIR farið á facebook!!!!!
Ragnheiður Hafstein (IP-tala skráð) 6.10.2008 kl. 17:04
Hæ. Ég er komin á feisbúkk líka en er ekki alveg að fatta það fyrirbæri. Meiri tímaþjófur er vandfundinn! Ég get heldur ekki séð hvernig þetta á að koma í staðinn fyrir blogg. Að vísu ágætur staður til að geyma myndir sýnist mér og allskonar fólk sem maður hefur ekki hitt í ár og áratugi (og mann langar kannski ekkert til að hitta) poppar upp þarna. Nei Jóhanna mín, við skulum bara halda okkur við bloggið og barnaland, að minnsta kosti líka.
Kveðja, Sonja frænka
Sonja (IP-tala skráð) 6.10.2008 kl. 21:36
Það var enginn að segja að þú ættir að hætta að blogga....hehe!! Haltu áfram að blogga og farðu bara LÍKA á Facebook!!!
Ragnheiður Hafstein (IP-tala skráð) 7.10.2008 kl. 19:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.